Gleðilegt nýtt
ár!
Við höfðum það mjög fínt yfir jólin
og áramótin. Lágum í leti, lásum og átum góðan mat og
kökur.
Þetta var öðruvísi aðfangadagskvöld
fyrir okkur Jón. Við vorum með 6 síldarrétti og 2 laxa rétti í
forrétt að pólskum sið. Í aðalrétt vorum við með buffaló sem
smakkaðist mjög vel. En við vorum þó frekar södd eftir allan
fiskinn. Eftir allt þetta át tókum við okkur frí frá átinu. Mike
var æstur í að fara að opna pakkana. Svo eftir uppvaskið settumst
við niður með nóakonfekt og opnuðum pakkana. Eftir upptökuna fengum
við okkur svo eftirréttinn, heimatilbúinn tobleroneís.
Við tókum lífinu rólega á jóladag, ég
var aðallega í því að lesa. Svo fengum við okkur hangiket, uppstúf
og jólaöl í kvöldmat.
Á annan í jólum skelltum við Jón
okkur með Tuma og Mary á ballettsýningu um Hnotubrjótinn. Sýningin
er sett upp fyrir hver jól af dansflokknum hér í borg. Það var mjög
fínt að kíkja á ballett sýningu svona einusinni.
Hér eru nokkrar myndir frá jólunum
okkar.
Á föstudaginn skelltum við okkur í
ferðalag á Ólympíu skagann. Tókum ferju yfir Puget Sound til
Bainbridge Island og keyrðum til Dungeness sem er um 8 km langt rif
með vita á endanum. Klukkan var orðin svo margt að við náðum ekki
að labba mikið svo við ákváðum að koma aftur daginn eftir og ganga
út að vitanum. Fórum því til Port Angeles og fundum okkur mótel að
gista á og mexíkanskan veitingastað að eta á. Röltum svo aðeins um
dauðann miðbæinn áður en við komum okkur í háttinn. Tókum
laugardaginn snemma. Byrjuðum á að fara inn á verndarsvæði indíána
rétt utan við bæinn, héldum að þar væri e-ð að skoða, en komumst
fljótlega að því að á svæðinu voru nánast bara subbuleg hús, með
enn subbulegri görðum og nánast einu íbúarnir sem við sáum voru
hundar og fullt af þeim. Við komum okkur því bara í burtu og upp á
Hurricane Ridge, sem er partur af Olympíu fjöllunum, þar var mjög
fallegt. Þar gegnum við aðeins um og nutum veðurblíðunnar og
útsýnisins. Því næst fórum við aftur niður að rifinu og gengum út
að vitanum, fengum að fara upp í vitann að skoða, en gengum svo til
baka aftur, um 17.6 km báðar leiðir frá bílastæðinu. Þvínæst fórum
við til baka heim sömuleið og við komum.
Við tókum gamlársdag mjög rólega enda
þreytt eftir göngu laugardagsins. Þetta voru mjög róleg áramót. Við
fengum okkur kónga-krabbalappir í forrétt, sem smökkuðust mjög vel.
Svo hunangsskinku í aðalrétt. Eftir matinn spiluðum við Settlers
með Riddara viðbótinni sem Jón fékk í jólagjöf frá mér, ég vann
auðvitað eins og vanalega! Eftir spilið fórum við upp í Queen Ann
og horfðum á 7 mínútna langa flugeldasýningu á Nálinni á miðnætti.
Komum svo aftur heim, skáluðum fyrir nýju ári í freyðivíni,
borðuðum svo köku. Við vorum öll orðin uppgefin og drifum okkur
bara í háttinn.
Nýársdag höfum við svo aftur tekið
rólega, ætlum að gæða okkur á hangiketi í kvöldmat, tvö ein, því
Mike fer í dag aftur á heimavistina. Ætlum því að hafa kósý kvöld
tvö ein þar sem alvara lífsins byrjar aftur á morgun. Ég mun
líklega eyða öllum janúarmánuði inni á rannsóknastofunni, kannski
kíkja heim yfir nóttina til að sofa.
Það eru myndir frá ferðalaginu og
áramótunum á myndasíðunni, tengill 22 hér til vinstri.
Síðast en ekki síst sendum við Erlu Ösp afmæliskveðju! Hún
er orðin 12 ára!